Prentað fimmtudaginn 29. júlí kl. 23:24 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvað er fallegasta landssvæðið á Íslandi?

Austfirðir

Norðurland

Reykjanes

Suðurland

Vestfirðir

Vesturland

Borgarfjörður: Laugardag 14. ágúst
Borgarnes
Akranes: Miðvikudag 1. september
á Safnasvæðinu í Görðum
Snæfellsnes: Mánudag 6. september
Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
11. apríl 2008 10:30

Magnús Þór Hafsteinsson

Burt með legsteinastefnuna!

Nú er nóg komið. Ég set fram kröfu. Hún er BURT MEÐ LEGSTEINASTEFNUNA í samgöngumálum. Með legsteinastefnu á ég við það þegar samgönguyfirvöld skella við skollaeyrum og trassa fram úr öllu hófi að gera umbætur til að loka slysagildrum, þrátt fyrir ótal viðvaranir.

 

Reykjanesbrautin hefur verið mjög í sviðsljósinu og það af eðlilegum orsökum eftir hræðileg slys þar í vikunni. En annað slys hefur fallið í skuggann af þessu. Það er slys sem verður líka að fá umfjöllun. Fjölmiðlar ættu að beina sjónum sínum að öryggismálum á Vesturlandsvegi.

 

Í vikunni lenti strætisvagninn sem fer á milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins, á kyrrstæðum flutningabíl sem stóð á þjóðveginum á Kjalarnesi. Vagninn skemmdist mikið, ökumaður slasaðist á fæti og einhverjir farþegar hlutu minniháttar meiðsl. Þarna hefði getað farið miklu verr. Snemma þennan morgun var glerhálka á Kjalarnesveginum, sunnan við munna Hvalfjarðarganga. Þar voru einnig miklir sviptivindar eins og oft er á þessum kafla. Þetta er einn mesti rokrass á landinu og er þá mikið sagt. Í fyrra fauk stór strætisvagn hreinlega útaf veginum næstum á sama stað og slysið varð í morgun. Þessi þjóðvegakafli er einnig einn þeirra sem hafa hvað mesta umferðaþunga á landinu öllu. Hann er hættulegur og ætti fyrir löngu að vera komið vel á veg að tvöfalda hann frá Hvalfjarðargöngum í átt til Reykjavíkur.

 

En það er annað sem ég vil benda á, sem lýsir trassaskap samgönguyfirvalda þó margoft sé búið að vara við. Það er að vegfarendur sem koma upp úr Hvalfjarðargöngum sunnan megin fá engar upplýsingar um þau akstursskilyrði sem bíða þeirra á Kjalarnesveginum undir snarbröttum Esjuhlíðum. Það er ekkert upplýsingaskilti eða neitt sem gefur til kynna hvað framundan er.

 

Mér er full kunnugt um að það er margbúið að nefna það að úr þessu verði að bæta. Þeir sem hafa hvað dyggilegast staðið í þeim málum eru einmitt bílstjórarnir sem aka strætisvögnunum á þessum varasama vegakafla og flytja þúsundir farþega á hverju ári. Þeim er annt um velferð farþega sinna og hafa mjög mikinn áhuga á öryggismálum. Það veit ég eftir að hafa rætt við þá, meðal annars sem einn af þeim sem ferðast með strætisvögnum á þessari leið. Það hefur verið rætt við þingmenn og sveitarstjórnarmenn, þar á meðal þingmenn SAMFYLKINGAR í Norðvesturkjördæmi sem eiga að vera beintengdir við sinn samgönguráðherra. Ég veit að Guðjón Arnar Kristjánssson formaður Frjálslynda flokksins hefur tekið þetta upp á fundum, meðal annars í samgöngunefnd Alþingis. Það hafa verið skrifuð bréf til samgönguyfirvalda.

En ekkert hefur gerst. Og í morgun varð aftur slys...

 

Magnús Þór Hafsteinsson, sveitarstjórnarmaður á Akranesi og varaformaður Frjálslynda flokksins.

 


Til baka


yfirlit greina

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 23:10  SA 3  13°C
Akrafjall 23:10  ANA 5  14°C
Hafnarfjall 23:00  SA 1  15°C
Vatnaleið 23:10  ASA 3  13°C
Hraunsmúli 23:10  NV 1  14°C
Fróðárheiði 23:10  A 3  10°C
Brattabr. 23:10  NNA 1  12°C
Holtav.h. 23:10  NNA 2  10°C
Laxárdalsh. 23:10  A 4  10°C
Svínad. 23:10  N 1  12°C
 
Akrafjall 23:00  ANA 5  14,1°C
Ásgarður 23:00  N 2  14,0°C
Brattabrekka 23:00  Logn 0  11,8°C
Fróðárheiði 23:00  ASA 3  10,3°C
Grundarfj. 23:00  SSA 2  13,4°C
Gufuskálar 23:00  ANA 5  13,7°C
Hafnarfjall 23:00  SA 1  15,4°C
Holtavörðuheiði 23:00  N 3  10,4°C
Hraunsmúli 23:00  NNV 1  13,8°C
Húsafell 23:00  ASA 4  14,3°C
Hvanneyri 23:00  A 5  14,8°C
Kjalarnes 23:00  ASA 4  13,4°C
Reykhólar 23:00  Logn 0  13,4°C
Stykkishólmur 23:00  NNA 2  13,9°C
Vatnaleið 23:00  ASA 3  12,6°C
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent